Kröfur hafa verið endurstofnaðar í heimabönkum vegna skulda við eignasafn BPO Innheimtu ehf. Þetta er gert til að tryggja gagnsæi og að kröfur séu sýnilegar í bankakerfum, svo einfaldara sé fyrir skuldara að gera upp skuldir sínar og komast hjá óþarfa kostnaði.
Allir skuldarar sem hafa samband bjóðast mjög hagstæð kjör og er markmið okkar, líkt og áður, að ná farsælum og sanngjörnum samningum í hverju máli fyrir sig. Vegna algengs misskilnings viljum við taka fram að kröfur vegna keyptrar þjónustu fyrnast á 4 árum, en kröfur vegna peningalána fyrnast á 10 árum. Innheimtukerfi bankanna eru með tímamörk á innheimtu og því þarf að endurstofna kröfur í bankakerfinu að 4 árum liðnum, þrátt fyrir að þær séu ekki fyrndar að lögum.

Við bjóðum upp á fjölbreyttar greiðsluleiðir, t.d. með greiðslu á kröfum, kortagreiðslu eða millifærslu.
Ef þú átt ekki kost á því að greiða alla skuldina þá viljum við finna sameiginlega lausn með því að setja upp greiðslusamkomulag.
Fáðu eingreiðslutilboð í skuldirnar þínar og klárað málið með skjótum hætti.
Ef þú hefur einhverjar spurningar þá ekki hika við að hafa samband símleiðis, í gegnum tölvupóst eða spjall á vefnum. Þjónustuver okkar er opið alla virka daga á milli 9 og 16.
Við bjóðum kröfuhöfum upp á fjölbreytta þjónustu er snýr að innheimtu krafna innanlands sem erlendis. Hafðu samband við viðskiptastjóra til þess að fá nánari upplýsingar.
Hafa samband við viðskiptastjóra© BPO Innheimta ehf. | kennitala: 5204190390
Skipholt 50c, 105 Reykjavík
LÖGGILT INNHEIMTUFYRIRTÆKI UNDIR EFTIRLITI FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS (FME)